Framkvæmdagleðin er alveg að drepa mig þessa dagana
og
nú tók ég upp á því að búa til slaufur.......
...eina á bangsann minn og .....
....og eina
sem ég setti á hárspennu dóttur minnar.
Í eina slaufu klippti ég til flónelefni 18x14 cm og
7x5 cm. Ég saumaði saman allar hliðar á röngunni en skildi eftir smá gat
til að geta snúið efninu við. Síðan saumaði ég saman gatið. Því næst
saumaði ég endana saman á litla bútinn (þannig að hringur myndist), tróð
stóra bútinn í gegn um hringinn og lagaði til. Á bangsann bætti ég við þriðja bútinn 22x7 cm og tróð honum í gegn
um hringinn líka (sjá mynd af bangsanum). Endaði á að rífa niður efni
(sem ég saumaði ekki saman heldur hafði það rifið) til að binda utan um
hálsinn á honum og tróð því líka í gegn um hringinn.
Myndarlegur þrátt fyrir að vera hmmm 45 ára!
Myndarlegur þrátt fyrir að vera hmmm 45 ára!
Í slaufuna hafði ég bara fyrstu tvo bútana +
bætti við efni til að hylja plastið á spennunni sem ég límdi niður með
límbyssu. Sjá útskýringar á myndunum.
E.S. ég nennti ekki að taka fram
saumavélina, rippaði bara saman í höndunum :)
Algjört spari :)
No comments:
Post a Comment