15 February 2013

Bangsinn góði


Maður er aldrei of gamall fyrir bangsa ;)
 Þennan saumaði ég handa dóttir minni sem er ellefu ára og 
skrifaði falleg orð á hann beint frá hjartanu. 

Fyrst þvoði ég efnið sem er úr 100% bómull. 
 Við það þéttist efnið og stafirnir "leka" síður þegar skrifað er á það.

Þegar ég var búin að sauma greyið saman
 teiknaði ég á hann blóm, stjörnur og hjörtu ♥
 og skrifaði og skrifaði.


  Ég tók upp snið af öðrum bangsa sem ég átti til.  
Það er líka hægt að googla "sew format of teddy bear pattern"
 og þá kemur upp fullt af sniðum. 
 Eða "sew format of elephants pettern" til að sækja fílasnið.
  Svo fann ég líka þessa síðu, fulla að dýrasniðum 
 http://allcrafts.net/sewing/stuffedanimalssewing.htm


 Góða nótt bæði tvö ....zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz