23 March 2015

Létt og gegnsætt ....Úllala!


 Mig hefur lengi langað til að setja upp léttar gegnsæjar
gardínur í hjónó, fyrir framan þær dökku sem eru fyrir.
 Ég skil ekki hvers vegna ég var ekki búin að því fyrr,
eins lítið mál og það var hehe.

Þar sem herbergið er 283 cm á milli veggja þá hélt ég að ég fyndi
 ekki nógu stóra þrýstistöng, en viti menn....hana fann ég í Rúmfó.

Gardínurnar fengust líka í Rúmfó.
Þær eru tilbúnar með kósum (hringjum).
Hver vængur er 130 x 245 cm og kostaði aðeins 1000 kr stk.


Iss piss hve létt var að henda þeim upp.
Það eina sem ég þurfti að gera var að strauja!


 Bara við þetta þá er eins og herbergið hafi stækkað og mun bjartara er yfir því.



10 March 2015

DIY myndir á luktir, kerti og fl.


Allt sem ég geri kemur í skorpum,
 verð eiginlega heltekin eins og listamaður hehe :)
Þá geri ég margt í einu og svo kannski ekkert í langan tíma.

Núna langar mig að sýna ykkur skemmtilega aðferð til að skreyta luktir, kerti og fl.


Allt sem þarf er útprentuð mynd á LASER prentara....

 ..... lím .....

 ... pensil ....
... hárblásara og .....

..... svamp.



 Farið nákvæmlega eftir aðferðinni sem Föndra kennir.
 Ég set hér inn link á aðferð sem svínvirkar og er auðveld.
(foto tranfer potch)

 http://www.fondra.is/leiethbeiningar.html


Ég bætti einu við sem er ekki á leiðbeiningunum.
 Það er efni sem Martha Stewart framleiðir og lítur svona út.
Þessu penslaði ég yfir myndina, svona til að fá "frosting" eða matta áferð.

 Lampinn fyrir....


og eftir :)

Falleg lýsing og öðruvísi ;)

Langar að lokum að sýna ykkur hvað ég er með á prjónunum.
 Þessa keypti ég í Ikea á 1250 kr.
Það eru fjögur gler á luktinni sem hægt er að losa frá
 og setja myndir á, t.d. af börnunum ykkar, 
dýrunum eða googla vintage myndir á netinu til að prenta út.

Ég ætla svo að hafa svona kerti innan í, finnst það snytilegra.
Þá lekur ekki vax út um allt. 

Eigið annars góðan óveðursdag elskurnar ;)







 





08 March 2015

Baðherbergisborð með öllu tilheyrandi fékk að fjúka fyrir nýtt :)


Það hefur verið á dagskrá nokkuð lengi að henda út
 rúmlega 11 ára gömlu baðherbergisborði,
 en eitthvað teygðist á framkvæmdunum þar sem illa
 gekk að finna smið til verksins.

Einn daginn fékk ég nóg af biðinni, 
enda þarf allt hjá mér að gerast í gær!
Ég tók þá ákvörðun að gera þetta bara sjálf 
og kom það mér á óvart hve auðvelt verkið var.

Svona leit borðið út fyrir breytingar og....

svona leið skápurinn út fyrir ofan borðið.  

Ég grunnaði og lakkaði yfir tvær umferðir með svörtum lakki.

 Þemað er svart/hvítt.
Eins og svo oft áður þá var ekki langt í rafmagnsteipið mitt.
Hér hef ég teipað höldurnar til vinstri, 
þær til hægri fengu svo sömu meðferð.

 Fékk þennan vask á slikk í Húsasmiðjunni og þá meina ég SLIKK! 
Heilar 5900 kr takk fyrir!


Blöndunartækið kemur frá Ikea. 

Þeir í Fanntófelli söguðu borðplötuna niður eftir máli,
en ég þurfti að líma niður plastkant á hliðina
 til að hylja sárið sem myndaðist við skurðinn.

Spegillinn var í sama lit og skápurinn áður.
Ég fór ekki út í það að lakka hann svartann
 heldur teipaði með rafmagnsteipinu góða :)

Lýsingin kemur líka frá Ikea.
Til að þurfa ekki að bora í flísarnar þá setti ég festingu
 úr járnplötum á bakhlið spegilsins. 
Frábær birta sem kemur af þessari dásemd :)


Kökustandurinn góði frá Rúmfó í snyrtilegu hlutverki.

Í þessu nestisboxi eru blautklútar.
Ég limdi svarta filmu á hliðarnar og ofan á.

Óbreyttir skápar fyrir ofan klósettið sjálft.

Glerhillur frá Ikea fyrir ofan baðkarið, vírkarfa frá Tekk :)

Allt annað útlit á "tojlettinu" og bara svo mikið skemmtilegra
 að hugsa þunga þanka þar núna :)