25 March 2014

Holið í nýjum fötum

Komið þið sæl og blessuð og takk fyrir síðast :)
Það virkar mjög vel á mig til að koma einhverju í verk að setja mér markmið.
Núna var/er markmið mitt að klára hitt og þetta fyrir
útskriftarveislu dóttur minnar sem verður í júní.

Nr 1: Forstofa = Tékk!
Nr 2: Holið = Tékk!
Nr 3: Sjónvarpsveggurinn fær yfirhalningu.
Nr 4: Setja upp nýjar eldhúsborðplötur sem komnar eru í hús.
Nr 5:  Sauma nýtt áklæði utan um sófann eða "bara" fá nýjann.

Jæja langar ykkur að sjá holið?

 Kristján fékk svona heimskort í jólagjöf.
Þetta kort er úr filter og hugsunin er að pinna þá staði 
sem þú hefur heimsótt eða langar til að fara á :)

Ég klambraði saman blindramma og festi aftan á kortið.

Eins og á svo mörgum heimilum þá eru rafmagnstöflur ekki mikið stofuprýði.
  Þannig er hjá mér, töflurnar eru í holinu og taka þó nokkuð pláss.  
Þess vegna tók ég hurðarnar af töflunum, 
negli tvo nagla á vegginn og hengi yfir þær ;)

Lítið mál er að taka kortið niður ef maður þarf að komast í töflurnar.

Eitt stk heimskort og eitt stk Íslandskort!

 Hér sést vel yfir allt holið.
Áður var kommóða úr dökkum viði sem dóttir mín 
tók í fóstur í skiptum fyrir hennar kommóðu.

DIY lampaskermur, stafir og bókin undir glerinu. 
 Allt komið áður fram á síðunni :)

Ég málaði svarta kassa til að innramma myndirnar og annan við hlið kortsins.


DIY box sem ég hef áður sett inn.
Túrkis liturinn frá Ikea kemur líka þrælskemmtilega út

Prentarinn fékk nýja hirslu undir sig eða tröppu frá Ikea.
 http://www.ikea.is/products/12536
Ég útbjó "hillu" úr efna-afgöngum sem ég átti og heftaði efnið fast undir tröppuna.

 Séð á hlið. 
 Hlutverk efnisins er að fela snúruflóðið sem er í þessum kassa;)

 Skoooo!
Engar snúrur sjáanlegar!

 Munið þið þegar ég keypti spegill í Rúmfó?
Hann var hvítur og lakkaði ég hann svartan.
Núna pússaði ég yfir skrautið á honum með sandpappír, 
hengdi upp hillu fyrir fimleikastelpurnar mínar og límdi skrautlímband á hana ;)

 Gamall þessi yddari og rifjar upp gamlar minningar.

Blómavasastandur frá Tekk company

Þessa mynd málaði Bryndís Svavarsdóttir
 kona pabba míns og gaf okkur Kristjáni.

Afmælisgjöf sem ég gaf Kristjáni í fyrra.

Pússlmynd sem Sigurður Bragi minn gerði í gamla daga 
og engilinn gerði María Mist mín.

Annað verk frá Sigurði Braga.

Að lokum eftir að hafa gefið ykkur innsýn í holið,
 þá langar mig að sýna ykkur soldið sniðugt.
Þetta eru fætur á skrifborðinu. 
 Í hvert sinn sem ryksugað var eða skrifborðstóllinn færður til þá hjóst af tréverkinu.  
Ég límdi einfaldlega svörtu rafmagns-límbandi yfir skemmdirnar
 og nú er hægt að hamast á fótunum án þess að skemmdir komi :)




20 March 2014

Nýuppgerð forstofa

Jæja, ég lét loksins verða að því að breyta forstofunni! 
Það var ekki alveg átakalaust að byrja skal ég segja ykkur. 
 Það er nefnilega þannig að þegar íbúðin er ekki stór sem maður býr í, 
þá er svo mikil röskun að taka allt úr einu herbergi og finna pláss
 fyrir dótið annars staðar á meðan á breytingum stendur. 
 En þegar sonurinn fór að heiman í viku þá  dreif ég mig í breytingarnar 
og skil bara ekkert í sjálfri mér að hafa ekki gert það miklu fyrr hehe :)

 Ein svona "fyrir" mynd.
  Þessar hillur gengdu því hlutverki að vera skóhillur
 í MÖRG ár og voru orðnar ansi þreyttar.

 Þá var ekkert annað í stöðunni en að taka þær niður
og fékk ég dygga aðstoð frá Tuma mínum.

 Eins og sjá má var alveg kominn tíma á að mála!

Hér er ein umferð búin. 
Ég valdi gráan lit frá Slippfélaginu í gljáa 20, 
enda þurfa veggirnir að þola mikið álag í forstofu...

.... og hér eru tvær umferðir búnar.

 Ég keypi skóskáp í Ikea  http://www.ikea.is/products/12011,
 skellti honum saman og festi við vegginn.

Skápurin er með tvöföldum hillum í hverri skúffu,
 sem er snilldin ein.

En til að geta nýtt plássið undir skápnum fyrir skó,
 þá setti ég aðra fætur en þeir sem fylgja, þ.e.a.s hærri.

Munið þið þegar ég auglýsti eftir litlum Lack hillum?  
Ég var svo heppin að nokkrir höfðu samband við mig 
og fékk ég stk.á 300 kr. í stað 1290 kr. í Ikea.

Hillurnar fengu pláss við hliðina á nýja flotta skápnum.

 Ég límdi skrautlímband frá Ikea efst á hverja hillu.
Bara svona einfalt gerir rosa mikið ;)

 Ég nýtti spegilinn sem til var, með því að nota hann
 sem skilrúm á milli yfirhafna og skóa.
  Eins og sjá má þá snýr bakhlið spegilsins að skónum. 


 Þegar ég var í Hagkaup um daginn, rataði í körfuna mína diskamotta.
  Klippti ég hana niður og festi efst á skilrúmið.


Fallega ættartréð mitt komið á sinn stað.....

og sæta bláa öndin frá Tiger fékk hlutverk.

Kertastjakarnir sem ég og Kristján keyptum í London
eru nú uppá skóskápnum og líka......

.....þessi kertastjaki sem fæst í Hagkaup.
Allt fékk sinn stað :)

Þá er heildin svona.

Takið eftir stönginni. 
 Hún er frá fyrri samstæðunni en á hana festi
ég nokkra snaga fyrir hangandi yfirhafnir.

 Á sínum tíma var flísalagt upp að skáp sem hér var. 
Til að fá allt jafn hátt þurfti ég að steypa í rýmið,
en ofan á setti ég mottu og þar ofan á kommóðu.

Mottan er alveg extra löng og nær yfir forstofuna þverlanga.

Steinakallinn sem ég fékk í 45 ára afmælisgjöf húkir útí horni.

Skipti út gamla ljósakúplinum út fyrir þennan kastara
 og er mega ánægð með lýsinguna :)

Ég ákvað að nota áfram þetta hengi í skotinu.
Togað er í stöngina til að fá herðatrén niður.


Ný hvít kommóða í stað þeirra gömlu
sem var viðarlituð með lúnum skúffum.

 Langur hvítur spegill sem er ómissandi í forstofu :)

Séð inn í skotið.

Tunnusætið góða frá Ilva með geymsluplássi undir setunni.

FINISH!