Kertagerð
Það
kom mér á óvart hve auðvelt það er að búa til kerti úr kertaafgöngum.
Ég bræddi kertastubbana í vatnsbaði og á meðan það var að bráðna límdi
ég þráðinn í botninn á glerkrukku /áldós með límbyssu (passa að vaxið
ofhitni ekki). Svo hellti ég vaxinu úr pottinum í könnu
(það er gott að hafa stút, annars fer allt út um allt
þegar hellt er
beint úr pottinum).
Til að halda þræðinum beinum á meðan vaxið
storknaði í krukkunni
setti ég einnota grillspjót ofan á glasið, eða
íspinnaspýtu.
Prófið líka að setja klaka á víð og dreif í mótin og taka svo kertin úr mótunum.
Þá verða þau götótt og flott.
Ég notaði engin sérhönnuð áhöld fyrir kertagerð,
bara
pott sem ég átti í skápnum :o)
Glasa-armur á sófa
Hér
pantaði ég plexigler eftir breidd armsins, bætti ca 1/2 cm við
og hafði tvær hliðar (ca 10 cm) niður með svo bakkinn haldist á arminum.
Síðan
setti ég eitt orð með rub-on ofan á plexið og annað tók við af því
þannig að það myndaði heilan stórann "orm" út úr öllu.
Ef þið skoðið fyrstu stafina sem eru "engillmenningarnótt" þá eru orðin engill-illmenni-menning-menningarnótt o.s.f.v :)
Að lokum
festi ég glerplötu ofan á til að hlífa öllu við rispum með límdoppum.
Lyklar
Á
mínu heimili búa 4. hræður og lyklarnir sem við eigum eru margföld sú
tala. Ég sá brilliant hugmynd um daginn að sniðugt
væri að naglalakka
lyklana sem ég og gerði.
Nú er geymslan með einn lit, heimilið með
annan lit o.s.f.v.
Og til að
toppa litagleðina setti ég glimmer yfir naglalakkið áður en það þornaði.
Bárujárn og veggfóður
Á
bak við skápinn límdi ég upp eina lengju af veggfóðri,
setti svo
bárujárn til hliðar og lét hluta af því ná yfir veggfóðrið.
Hægt er að
kaupa bárujárn eftir máli t.d. í Bykó, Húsasmiðjunni
eða beint af
framleiðanda. Margar tegundir og litir eru til.
Mig langar líka til að
benda ykkur á að ef þið finnið skáp í verslun,
sem ykkur lýst vel á, en
of fáar hillur eru í honum,
þá er lítið mál að láta gera
fyrir sig glerhillur eftir máli,
kaupa tappa í byggingarvöruverslun og
bora á þeim stað í skápnum
þar sem þið viljið bæta við hillum.
Þetta
gerði ég í skápnum á myndinni.
Kertaglös verða kaffibollar
Kannski á einhver svona, en þessi glös keypti ég með kertum í
en nota núna sem kaffibolla :o)
Jóla-jóla
Hugmynd
sem ég fékk úr blaði en útfærði örlítið.
Flöskurnar fékk ég í Ikea,
svo setti ég skrautsteina ofan í hverja flösku,
mest í nr1. enda lengst
að bíða þá o.s.f.v.
Hengdi tölurnar á og límdi jólaskraut á flöskuna
sjálfa.
Límdi reyndar líka glimmer utan um flöskuhálsinn eftir að ég
tók myndina.