Þrátt fyrir hve leið ég er orðin á forstofunni minni og 
langar til að breyta henni þá ætla ég að sýna ykkur hana, 
enda ágætis nýting á litlu rými.
 Svo er aldrei að vita nema ég hafi fyrir og eftir myndir....
hvenær sem það nú verður ;)
 Eitt
 það besta sem ég hef fjárfest í er þessi skógeymsla frá Ikea.
 Þetta 
eru tvær súlur sem eru festar frá gólfi upp í loft.
  Hægt er að raða hillum, skógrindum, skúffum, snögum og spegli á súlurnar.
 Snilldin ein :o)
 Lyklaskápurinn er kominn til ára sinna en hann er bara svooooo krúttlegur!
Ég
 valdi mynd úr litabók og tók í gegn með kalkipappír.
 Þá
 var ekkert eftir nema að mála í útlínurnar og setja króka undir.
 Upphaflega
 var skápur í forstofunni sem ég fjarlægði
 þar sem hann opnaðist á 
útidyrahurðina.
 Ég fékk mér í staðinn útdraganlega slá sem ég dreg niður
 þegar ég sæki fötin og ýti upp aftur eftir notkun. 
 Undir er ég með kommóðu 
fyrir húfur, vettlinga, sokka og fleira. 
Í raun mikið betri nýting 
heldur en þegar ég var með skáp.  
Þetta fæst t.d. í H.G. Guðjónsson, Tranavogi 5.
Þetta fæst t.d. í H.G. Guðjónsson, Tranavogi 5.
 Tröllafætur sem ég keypti í útlöndum long time ago.
  Algört ónauðsyn en skemmtilegt skraut ;)
Hurðastoppari. 
 Mér
 fannst ekki nógu mikil þyngsli á pokanum til að halda hurðinni,
 svo ég 
bætti við grjótum inn í hann. (Franskur rennilás á bak við)
 Ohhhh þessa tunnu elska ég!
 Gott að tylla sér á tunnuna til að fara í og úr skónum. 
  Undir sessunni er svo hægt að geyma ýmislegt stöff.
Sandblástursfilmur á útidyrahurðina.
Ef breytingar verða á íbúum skipti ég um bumbu :)
Sandblástursfilmur á útidyrahurðina.
Ef breytingar verða á íbúum skipti ég um bumbu :)






Sko er þetta FYRIR ... hefði talið þetta EFTIR ... snilldin ein !!
ReplyDeleteFlott hjá þér eins og allt annað sem þú gerir Árný ! Það verður gaman að fá að sjá breytingarnar :)
ReplyDeleteTakk fyrir Birna :)
ReplyDelete